Aðalfundur Samtaka sparifjáreigenda fór fram 12. apríl sl. á Hótel Sögu. Á fundinum var farið yfir starfsemi samtakanna og þær áherslur sem stjórn þeirra hefur haft. Einnig var lagður fram ársreikningur samtakanna fyrir árið 2016. Neðangreindir voru kosnir í stjórn :
Bolli Héðinsson, formaður
Sveinbjörn Björnsson, varaformaður
Soffía Hilmarsdóttir, ritari
Vilhjálmur Bjarnason, gjaldkeri
Svana Helen Björnsdóttir
Kristrún Heimisdóttir
Jóhannes Benediktsson
Kynnt voru ný verkefni nýs starfsárs, s.s. fundaröð um fjármálakerfið 10 árum frá hruni en hún mun standa út árið 2018 og inn á 2019.
Comments are closed.