Samtök sparifjáreigenda hafa stefnt forsvarsmönnum Kaupþings vegna markaðsmisnotkunar og að hafa þannig valdið hluthöfum bankans fjártjóni með blekkingum. Um prófmál er að ræða þar sem skorið verður úr því hvort almennir hluthafar sem áttu hlutabréf í Kaupþingi geti sótt skaðabætur á hendur Kaupþingsmönnum.
Það er Bolli Héðinsson, formaður stjórnar Samtaka sparifjáreigenda, sem stefnir fyrir hönd samtakanna og hefur stefnan verið birt Hreiðari Má Sigurðssyni, forstjóra Kaupþings samstæðunnar, Ingólfi Helgasyni, forstjóra Kaupþings á Íslandi, Magnúsi Guðmundssyni, forstjóra dótturfélags Kaupþings í Lúxemborg, Ólafi Ólafssyni, eins stærsta eiganda Kaupþings og Sigurði Einarssyni, stjórnarformanni Kaupþings. Var flestum þeirra birt stefnan á Kvíabryggju, þar sem þeir afplána nú dóma, m.a. vegna dóms um markaðsmisnotkun.
Í dómi héraðsdóms Reykjavíkur taldist þannig sannað að Kaupþing hafi stundað markaðsmisnotkun að undirlagi Hreiðars Más, Ingólfs og Sigurðar, með kaupum á eigin bréfum til að halda verði bréfa í bankanum uppi. Þótti sannað að viðskiptin hafi verið umfangsmikil og verið „stórfelld markaðsmisnotkun.“
Stefnan nú byggir á því að forsvarsmenn Kaupþings séu skaðabótaskyldir vegna þeirrar markaðsmisnotkunar sem þeir hafa sannarlega verið dæmdir fyrir og að þeir hafi vanrækt trúnaðar- og eftirlitsskyldu sína með saknæmum og ólögmætum hætti. Um ríkan og einbeittan ásetning hafi verið að ræða sem hafi blekkt þá sem áttu hlutafé í Kaupþingi.
Fjölmargar aðrar ástæður fyrir málshöfðuninni má finna í stefnunni sem fylgir með þessari tilkynningu. Í þessum tímamótamáli er þess krafist að forsvarsmenn Kaupþings greiði Samtökum sparifjáreigenda 902.493.733 krónur ásamt vöxtum.
Það er Hróbjartur Jónatansson, hrl, sem sækir málið fyrir Samtök sparifjáreigenda.
Stefnuna má nálgast hér.
Comments are closed.