Kynningarfundur, um væntanlega hópmálsókn fyrrum hluthafa í Landsbanka Íslands hf. gegn Björgólfi Thor Björgólfssyni, verður haldinn fimmtudaginn 25. júní næstkomandi klukkan 17:00 í sal V101 í Háskólanum í Reykjavík.
Fyrrum hluthafar í Landsbanka Íslands hf. hafa unnið með Landslögum að undirbúningi málsóknar á hendur Björgólfi Thor Björgólfssyni. Hefur rannsókn og gagnaöflun leitt til þess að fram eru komin gögn sem gefa sterklega til kynna að Björgólfur Thor hafi;
i) með saknæmum hætti komið í veg fyrir að hluthafar fengju upplýsingar um umfangsmiklar og líklega ólögmætar lánveitingar tengdar honum
ii) brotið gegn reglu um yfirtökuskyldu
Þeir sem eiga hlutabréf í Landsbanka Íslands hf. geta tekið þátt í hópmálsókninni. Hægt er að skrá sig í málsóknarfélag um hópmálsóknina á vefsíðunni: malsokn.landslog.is
Frekari upplýsingar eru veittar í síma 520-2917 eða í gegnum netfangið: malsokn@landslog.is
Um málsóknarfélagið
Tilgangur félagsins er að höfða mál til viðurkenningar á skaðbótaskyldu fyrir hönd félagsmanna á hendur Björgólfi Thor Björgólfssyni vegna tjóns félagsmanna af hlutabréfaeign þeirra í Landsbanka Íslands hf. Verði skaðabótaskylda viðurkennd mun félagið einnig sækja skaðabætur fyrir félagsmenn. Félaginu er ekki heimilt að starfa við annað en málarekstur í samræmi við tilgang þess. Félagið mun reka dómsmálið í eigin nafni fyrir hönd félagsmanna og í umboði þeirra. Þrátt fyrir að málsóknarfélagið eigi aðild að málinu eru það félagsmennirnir sem hver fyrir sitt leyti eiga þá hagsmuni sem málið varðar. Félagið fer með forræði á málinu svo bindandi sé fyrir félagsmenn, þar á meðal til að fella málið niður eða ljúka því með dómssátt. Um réttindi og skyldur félagsmanna fer samkvæmt samþykktum félagsins. Sjá hér: Samþykktir málsóknarfélagsins.
Hverjir geta orðið félagsmenn?
Hver sá sem átti hlutabréf í Landsbanka Íslands hf. þann 7. október 2008 eða leiðir rétt frá aðila sem átti hlutabréf á þeim tíma getur sótt um aðild að félaginu og þar með tekið þátt í hópmálsókninni.
Hvað kostar að taka þátt?
Þeir sem sækja um aðild að félaginu skuldbinda sig til að greiða félagsgjald sem eru kr. 5.000 fyrir hluthafa sem eiga 100.000 eða færri hluti í Landsbanka Íslands hf., kr. 15.000 fyrir hluthafa sem eiga 100.001 til 300.000 hluti, kr. 40.000 fyrir hluthafa sem eiga 300.001 til 500.000 hluti en 15% af nafnverði hluta þeirra hluthafa sem eiga fleiri en 500.000 hluti. Upplýsingar um fjölda hluta ættu að koma fram á skattframtali viðkomandi. Einnig er hægt að fá upplýsingar um hlutabréfaeign með því að senda tölvubréf á netfangið: malsokn@landslog.is
Landslög annast málsóknina
Málsóknarfélagið hefur gert samning við Landslög (www.landslog.is) um rekstur málsins og innheimtu á skaðabótum. Sjá hér: Samningur málsóknarfélagsins við Landslög.
Comments are closed.